Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Ingigerður Erlingsdóttir
  • Staður: Glasgow
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Nemi í M.Sc. in Civil Engineering and Management
  • Um mig: Ef þú veist ekkert um mig áttu ekki að vera hér :)

Auglýsing

Könnun

Doktorinn eður ei?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Total surprise

11. nóvember 2008 klukkan 00:15
Ég veit að þetta er mikið sjokkk... ég meina ekki einu sinni vika síðan ég bloggaði síðast, eða er það vika hummm...
Anyhow news news news!
Ég er komin með vinnu! U reyndar bara sjálfboðavinnu í viku en samt :) Jamm var ein af þeim heppnu sem hlotnaðist sá heiður að fá vinnu við Glasgow Fashion Week! Geri þetta nú aðalleg upp á það að ég í fyrsta lagi elska föt (ef það fór framhjá einhverjum) og í öðru lagi því þetta er frábært tækifæri til að plögga framtíðarvinnu sem verður vonandi sem einhver stór manager gella í major Fashion house hahahhahaha.......
Annað já fór til Edinborgar um helgina og hitti the love of my life. Ja amk einn af þeim ;) Skruppum við meðleigjendurnir til á rugby leik þar sem við sáum All Blacks (Nýja Sjáland) rústa Skotlandi 32-6. Þrátt fyrir stórt tap var þetta frábært!
Á leiðinni á völlinn, Murrafield stadium,  var ekkert smá mikið af fólki auðvitað að fara á leikinnn.. tjöld sem maður gat verslað sér trefla og bjór (auðvitað fengum við okkur trefla.. já og bjór) og fleira dót voru út um allt á leiðinni frá lestarstöðinni og stemmingin gífurleg. Stoppuðum auðvitað á pubnum í smá stund ;)

ég og jes




Nýja sjáland á eitt besta lið í rugby í heiminum svo það var ekkert smá flott að sjá þá spila. Leikvangurinn þar sem leikurinn var er þvílíkt stór og hann var nánst pakkaður. Skotarnir kunna sko að setja upp show! Eftir upphitun liðanna (með teygjum og tilheyrandi ;) ) Byrjaði showið með því að einskonar lúðrasveit kom gangandi inn á leikvanginn nema hún samanstóð af sekkjapípum og trommum og marseraði hún inn á leikvanginn meðan hún spilaði. Svo var einnar mínútu þögn eftir það til að minnast fallinna hermanna og meðan það stóð yfir var leikvangurinn algjörlega myrkvaður. Þetta var rosalegt, þúsundir manna samankomnir í algjörri þögn og algjöru myrkri. Þögnin var svo rofin þegar herþyrla kom yfir leikvanginn og þvílík fagnaðarlæti! úff... fæ bara gæsahúð við tilhugsunina! Liðin voru svo kynnt og þegar skotarnir komu inn á gengur þeir í gegnum einskonar göng af eldspúandi kyndlum... frekar magnað. All blacks gerðu svo haka, sem er frumbyggja dans sem þeir gera fyrir hvern leik, magnað!



Anyhow leikurinn var æðislegur, þrátt fyrir tap. Svo eftir leikinn fórum við og fengum okkur að borða og tókum svo lestina heim :) Enda öll frekar þreytt eftir langan dag! Kíkti svo á James Bond í kvöld sem var stuð en annars er bara búið að vera verkefnavinna og læti og fékk að vita að prófin eru 16. , 17., og 18.des. Sem kemur sér ágætlega þar sem ég á far heim 19.des :) Já gott fólk ég kem heim um jólin :)

Kveðja í bili!
Inga linga

PS. Fullt af myndum og videoum hérna

long time no blog....

03. nóvember 2008 klukkan 23:20
já sko humm... í fyrsta lagi er hundleiðinlegt að blogga (sorry sad but true) og í öðru lagi tímaleysi :)
En já ok það er kannski hugsanlega kominn tími á smá update.
Síðan síðast hefur hitt og þetta verið uppi!
Let me think.... höfum þetta stutt og laggott
föstudaginn 17.okt fórum við herbergisfélagarnir á rugby leik... Glasgow warriors vs. toulouse. Það var æði þrátt fyrir að toulouse hafi unnið :P

rugbt



Vikuna þar á eftir fór ég í klippingu í Glasgow... mjög hættulegt en nauðsynlegt athæfi. Það kom ágætlega út.. sakna alveg smá hárdúddana minna heima but you have to work with what you have :)

föstudaginn 24. fundum við Beth St. George square og jólaljósin með því ásamt Gary og Kris sem eru algjörar dúllur og hjálpuðu okkur að finna george square ásamt því að bjóða okkur í kaffi.. ég veit skotar eru æði :)

st. george square

Sunnudaginn 25. fórum ég, Beth, Jestein og Tovah á Aimee Mann tónleika á stað sem heitir The old fruit market. Það vildi þannig til að Jes... rakst á einn af hljómsveitinni niður í bæ og hélt að hann væri að vinna í einhverri búð og var að spurja hann um vinnu. En það kom í ljós að hann var að spila með Aimee Mann (Grammy vinnari ef þið vitið það ekki) og bauð okkur á tónleikana sem voru góðir. Ennþá betra var að við fengum að fara backstage eftir tónleikana og hitta hana sem er náttúrlega bara soldið kúl!!!

aimee mann

Svo þess fyrir utan er náttúrlega búið að vera ótrúlega mikið að gera í skólanum. Er núna í course sem heitir people and organisation. Mjög skemmtilegur kúrs og kennarinn er ekkert nema bara æði. En nóg að gera get ekki kvartað yfir því... og ekki má gleyma því að það var víst halloween um seinustu helgi.
Við ákváðum að halda party þar sem þetta var eiginlega svona fyrsta alvöru halloween fyrir mig. hahaha... ameríkanarnir nattúrlega aðeins rúmlega með á nótunum. En já sko humm.... Ég var sígauni, Jes var Fríða í fríða og dýrið, Beth var djöfull, Tovah var Xena the warrior princess, Nic var uppvakningur og David var bara kanadamaður (ekki þekktir fyrir skemmtilegheit). Anyhow við fengum fullt af skemmtilegum gestum m.a. annan djöful, fótboltamann, innbrotsþjóf (sem er í alvörunni galdramaður og sýndi okkur sægó flott töfrabrögð), shaft, frakka ofl... þetta var amk voðalega gaman og það var spilað beer pong út í eitt milli töfrabragða og dáleiðslubragða hummm... Á einum punkti fannst mér það td. mjög sniðugt að draga alla inn í herbergi og sýna þeim eurovision videos.. já ég veit ekki afhverju! En ammk einn gypsy coming up...




Það er semsagt nóg að gera í öllu hreint út sagt! Um næstu helgi er stefnan tekin á Edinborg og All blacks (nýja sjáland) vs. Skotland í Rugby. Held að við ætlum líka að fara í dýragarðinn og eitthvað svona skemmtilegt :)



En ætli við endum þetta ekki bara með smá kveðju frá All blacks (gæti ekki verið meira spennt fyrir þeim!!!)
Knús og kyss
Inga linga

Edinborg og verkefnavinna

13. október 2008 klukkan 13:46
hæ og hó....
Héðan er allt fínt og frétta og allir í góðu standi :) Verð að taka undir með litlu systir þegar ég segi að ég reyni mitt allra besta við að láta kreppuna ekki rugla mig í ríminu eða rúminu :D Það er víst lítið við þessu að gera og svo lengi sem allir eru við heilsu þá er lífið bara nokkuð gott. Held barasta að gamli málshátturinn sem hljómar einhvern veginn svona... sættu þig við það sem þú getur ekki breytt  eigi bara nokkuð vel við ég meina hvað getur maður svosem gert í þessu.
Anyhow þá er veðrið búið að vera upp og ofan... í seinustu viku rigndi svo mikið að það mætti halda að maður væri í sturtu en núna er bara yndislegt haustveður og ég held bara að maður sé að upplifa almennilegt haust í fyrst sinn. Haustið heima er bara eiginlega ekkert miðað við hérna. Það er bara einn daginn öll laufin farin og kominn snjór, eða svona því sem næst. Líkar voðalega vel við haustveðrið og á það bara nokkuð vel við mig :) Get ekki sagt að herbergisfélagar mínir séu eins heppnir og ég þar sem þau eru jú frá aðeins heitari stöðum en ég og eru bara í kvefinu hahaha... ætli maður sé ekki búinn með ansi marga af þeim kvillum þó það klárist víst aldrei alveg!
Annars var seinasta vika ansi róleg. Fórum í workshop með einhverri leikkonu og það var bara ansi fínt og sóuðum svo heilum degi í fyrirlestra um hvernig ætti að forðast ritstuld og fleira í þeim dúr, frekar mikið  ekki að gerast í skemmtilegheitum.
Við Beth kíktum til Edinborgar á laugardaginn. Það var bara drifið sig á fætur um 7 leytið og skundað niður í bæ þar sem við tókum lestina til Edinborgar. Á lestarstöðinni í Glasgow gerðum við okkur grein fyrir reginmistökum að velja þennan dag þar sem það var landsleikur í Glasgow.

sdfsd

Föttuðum þetta þar sem allt var morandi af skotum í pilsum og landsliðstreyjum sem voru semsagt að koma til Glasgow. En við sættum okkur  bara við orðinn hlut og héldum til Edinborgar. (Djö missir maður af miklu þegar maður hefur ekki sjónvarp). En já við kíktum auðvitað í Edinborgar kastala...

dfsa

Þar sem var auðvitað fullt af fólki... tókum fullt af myndum og mínar getið þið fundið hér....
Það var hálfgert rokrassgat þrátt fyrir annars fínt veður svo ég átti í mestu vandræðum með að halda pilsinu mínu niðri og Beth sá ekkert fyrir hári.... hahaha...
Eftir kastalaferðina fórum við í verksmiðju sem gerir skotapils og ég er ekki frá því að ég hafi verið orðin soldið rugluð á því að horfa á svona mikið af köflóttu í óþarflega langan tíma :P

dfa

Þegar við komum úr verksmiðjunni hittum við þennan gaur...




Hann var frekar skondin týpa og vildi endilega vita hvaðan ég væri.... ég sagðist auðvitað vera frá Íslandi og hann varð alveg yfir sig hrifinn af því og kallaði mig víkinginn sinn og vildi endilega gefa mér símanúmerið sitt ásamt því að hrósa hæfileikum mínum með sverð.. hhahaha..... ruglaðir skotar.
Hittum líka þennan gaur....

dfsa

og þessi var rosalega hress....

sga


Eftir að hafa lent í hinum ýmsu ævintýrum á "The royal mile" eða konunglegu mílunni kíktum við á Höll drottningar í Edinborg og hið ótrúlega ljóta þinghús skota (sem á samt að vera rosa flott).

reyw

Ljóta þinghúsið og svo...


dorlla

Aðsetur drollu í Edinborg... verð nú að segja að mér finnst að þeim hafi tekist aðeins betur til þarna í eldgamla daga en hinum nýju.

Eftir röltið á mílunni þá röltum við tilbaka og hittum furðufugla líka þá. Þannig var mál með vexti að við vorum að labba á eftir einhverjum rosalegum pönkara, hann var með sítt svart hár og andlitið á honum var eins og gatasigti vegna ofgötunnar. Gaurinn var í hermannabuxum með keðjum og allur hinn vígalegasti. Nema.....
hann var með pínkulítinn hund í bandi og stoppaði við hvern einasta búðarglugga til að laga á sér hárið. Ekki nóg með það heldur spurði hann "venjulegan" strák sem var með honum hvort hárið væri í lagi... ég hélt bara að ég myndi kasta upp af hlátri. Þar fór scary lúkkið fyrir lítið! Tók því miður ekki mynd af kauða...
Fórum aðeins niður í verslunarkjarna Edinborgar og reyndum sem við gátum til að finna pub til að horfa á leikinn í.. en allt kom fyrir ekki! Komumst því að þeirri niðurstöðu að Edinborg sökkar.. sko félagslega. Ég meina hérna getur maður ekki gengið 10m án þess að sjá pub og flestir eru hafa tv sem hægt er að horfa á leiki í!
Anyhow tókum lestina aftur til baka og vorum bara ótrúlega ánægðar með að vera komnar heim
Ekki skemmdi það fyrir að niður í miðbæ á Buchannan street hittum við bestu vini okkar og kunningja..



jújú.. slökkviliðið!

Komumst nú samt heilar heim og drifum okkur í partygírinn og kíktum á The loft.

Á sunnudaginn dreif ég mig svo ásamt öllum nema Dave í Ikea og gátum við aðeins verlsað þar... :)
Sumir meira en aðrir!
En best að fara að drífa sig í verkefnavinnu
Cheers
Inga

Tónleikar og svona

06. október 2008 klukkan 12:37
jæja fólk... er ótrúlega ánægð hvað fólk er duglegt að commenta og svona :) endilega haldið þessu áfram!
En nóg um það.. Seinasta vika var frekar viðburðarík í skemmtanalífinu amk.
Föstudagurinn var tekinn í örlítið shoppin sprey... þar sem það er orðið soldið kalt hérna og það var þörf á einhverjum aukaklæðni.
Við flatmates skruppum svo á frábæra tónleika á föstudagskvöldið. Tónleikarnir voru haldnir á pub sem heitir The captain's rest og er alveg ekta skoskur pub. Byrjuðum á að borða þar og það vildi svo skemmtilega til að hljómsveitin sat á næsta borði. Þar sem rúmur helmingur af fólkinu sem ég var með eru bandaríkjamenn og hljómsveitin líka.. þá endaði það með því að við spjölluðum alveg heilmikið við þau og komumst m.a. að því að trommuleikarinn er að læra í Edinborg ví... líklega með Gísla Marteini (eða ekki).
 
dfa



Anyhow upphitunarbandið var The bad bad man... og þeir voru algjör snilld. Þetta er local band og mér fannst þeir bara mjög góðir og ég held að flestir þarna hafi verið á svipaðri skoðun. Við, Jestein gerðumst algjörar grúppíur og fengum Beth til að taka mynd af okkur með þeim... sú mynd heppnaðist vægast sagt ekki hahaha...
En Bodies of water voru bara mjög góð og við vorum þvílíkt að fíla okkur þarna.


dfs




Eftir tónleikanna skruppum við Beth aðeins niður í bæ en það var nú bara stutt stopp þar sem það var einhver þreyta í gangi enda fór laugardagurinn í ekki neitt... nema laugardagskvöldið sem endaði í eldhúsparty og of mikill neyslu af rommi. Ekki sniðugt!
Sem betur fer var veðrið svo geðveikt gott í gær að við Beth ákváðum að kíkja niður í bæ það er alltaf svo frábær stemming niður í bæ um helgar og það brást ekki. Bara gaman... gerðum reyndar rosaleg mistök með því að ákveða að kíkja í bíó og The Dutchess sem er um best versta mynd ever! Ég meina myndin er góð en manni lýður eins og maður ætti að hoppa ofan af svölum eftir hana... örlítið depressing!
En já maður ætlar að fara að vera soldið aktívur hérna og kíkja í ræktina enda fáum við nemarnir árskort á 35 pund (sem er sko um 7000kr núna í ömurlegasta gengi ever). Svo maður verði nú góður á því :) Jei og ég og Beth komumst að  því í gær að það eru Coldplay tónleikar hérna í Desember sem þýðir bara eittt... það verður farið og það verður geðveikt!

sda


En já skólabækurnar fara víst ekkert

Verið góð við hvort annað
Cheers
Inga

Það er aðeins að kólna...

02. október 2008 klukkan 22:56
.. alveg hægt að fullyrða það að maður er farin að þurfa jakka og svoleiðis hérna megin.. ekki snjór eins og heima en það er defenatly að kólna (Soldið skrítið að missa af fyrsta snjónum :P).
Þessi vika er búin að vera ágætlega busy og verður það líklega áfram. Kláraði fyrsta kúrsinn minn eða svona næstum, það er víst verkefni og próf eftir en fyrirlestrarnir eru búnir. Í næstu viku erum við í workshop kúrs sem samanstendur af leiklistarkennslu eða eitthvað slíkt. Það kemur einhver voðalega merkileg leikkona og á að þjálfa okkur í því að halda fyrirlestra og koma fram. Sem er líklega ekkert nema bara jákvætt og örugglega bara gaman.
Í gær skruppum við Beth í hellirigningu og hittum Sadek og Ross (Tyrk/Grískur og skoskur) og horfðum á fótboltaleik í alveg frábærum stað í miðbænum sem heitir Walkabout. Risaskjár og við urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að horfa á liverpool rústa PSV Eindhoven vei..... Frekar fyndið þegar við vorum þar því það kom alveg hrúga af strákum inn og voru þeir bundir saman tveir og tveir og allir í kjólum... og ég er ekki að tala um skotapils eða eitthvað slíkt nei kjóla! Eftir frækin sigur og mikin fögnuð ;) fórum við í afmæli hjá vini Sadek sem við þekkjum ekki og það var þvílíkt party og bara gaman enda er búin að vera töluverð þreyta í gangi í dag :)
Á morgun er víst planið að fara í móttöku hjá viðskipta, lögfræði og félagsvísindadeild held ég að það myndi þýðast yfir á íslensku fyrir masters nema. Bara önnur móttakan sem ég fer í hjá deildinni... en alltaf gaman í party-um :) Svo eru það tónleikar með hinni stórgóðu hljómsveit Bodies of Water. Þekki þessa hljómsveit ekkert hrikalega vel en hún á víst að vera voða góð :) Jestein (flatmate) er búin að skipuleggja þetta allt saman svo við hin hlýðum bara. Held að planið sé svo að hitta aftur Sadek og Ross og líklega fleira fólk og kíkja á ABC sem er einn af stóru klúbbunum hérna... voðalega mikið af klúbbum hérna.
Komst að því í gær að aðal Rugby völlurinn hérna er bara í göngufæri frá heimili mínu :) Svo það er klárlega málið að kíkja á nokkra rugby leiki. Vonandi bara sem allra fyrst... held að næsti leikur sé Glasgow warrior vs. Toulouse svo það gæti verið gaman. Líka á plan listanum að kíkja til Edinborgar.. ætluðum að gera það á morgun en sé það ekki alveg fyrir mér. Busy dagur á morgun!
Verið góð við hvort annað og kíkið á Bodies of water ;)
Kveðja Inga Pinga


Humm...Rúm vika

29. september 2008 klukkan 15:43
Sorry yfir bloggleysinu... var búin að blogga alveg helling og allt datt út á einhvern óskiljanlegan hátt svo ég nennti hreinlega ekki að skrifa það allt aftur.
En semsagt síðan seinast hefur nú ansi hreint ýmislegt gerst.
Á laugardaginn fyrir viku villtumst við Beth um Glasgow í leit að prentara sem væri ekki einu sinni þess virði að segja frá því ef við hefðum hreinlega ekki farið um hálfa borgina í leit að prentara. Fundum enga búð sem seldi slík tæki nema apple búðina og þar er örlítið fyrir ofan budget-ið sem við höfðum hugsað okkur. Að lokum fundum við tvær búðir hlið við hlið... Stable og PC world. Enduðum á því að kaupa voðalega ódýra prentara í Stabler af voðalega næs gaur sem hét Gerrard og er að læra Glæpafræði eða eitthvað slíkt. Fengum amk á endanum prentara og böðluðust með hann um alla borg í nettri þynnku.
Byrjaði svo í skólanum á mánudeginum 22.ágúst. Ágætis ganga í skólan eða svona um hálftíma rösk ganga. En ég gengu um Botanic garden og Byres road (sem er svona hálfgerð verslunargata) svo það er ekki svo slæmt.

kjgk


 Ég byrjaði í skólanum á fullu í Management Decision making hjá Dr. Geoff Southern. Hann er fínn kall og ætlast hreint til þess að við lesum alveg helling... já það eru svona um og yfir 100 bls fyrir hvern tíma, svo það er eins gott að hafa sig alla við auk þess að þurfa að undirbúa kynningar fyrir hvern einasta tíma :P Kom mér reyndar soldið á óvart að við fengum allar bækurnar sem við þurfum. Í MDM var okkur var  skipt í hópa held við séum eitthvað um 90 allt í allt svo það er um 6-7 saman í hóp. Það úir allt og grúir hérna af indverjum og kínverjum svo það var ákveðið issue hjá Geoff að skipta þeim upp svo það væri ekki bara töluð kínverska út í eitt. Í mínum hóp erum við ansi fjölbreytt... líklega fjölbreyttasti hópurinn. Það er Hatem sem er frá Lýbíu, Agbani frá Nígeríu, Macy frá Tævan, Derick frá Tævan, Paul frá Tælandi, Henry frá kína og svo litli íslendingurinn hún Inga. Fólkið í náminu mínu á soldið erfitt með að setja mig í flokk. Það heyrir að ég er ekki kani og ég er ekki breti. Hugmyndflugið virðist ekki ná mikið út fyrir það :) Var spurð um daginn hvort ég væri frá Ástralíu... humm.. ekki alveg. Flestir hafa ekki hugmynd um hvað eða hvar Ísland er og verða alveg agndofa þegar þeir heyra að við erum bara 300þús hræður sem fyrir flesta hérna er varla ein gata í þeirra heimalandi.
Þrátt fyrir miklar annir í skólanum hefur okkur hérna tekist ágætlega að búa til tíma til að kíkja út á djammið :) Það er fullt af frábærum stöðum í göngufæri og ég er reyndar alveg sannfærð um það að west end sé um það bil besta hverfið í borginni :D Ég meina það er gömul kirkja hérna sem búið er að breyta í bar, samkomusal og klúbb.. do I need to say more?


Við Beth erum búnar að lenda í fullt af ansi skondnum atburðum á ferðum okkar um klúbba Glasgowborgar. Hittum fyrir hóp af gaurum sem voru að útskrifast úr Skipstjóranámi... þeir voru ansi hressir og einn af þeim hafði m.a. komið til Íslands í þorskastríðinu og vildi helst bara tala um það hahaha.... svo hittum við sekkjapípukennara og ástralskan sekkjapípuleikara ásamt fleira skrautlegu liði. Fólkið hérna er ekkert smá vingjarnlegt svo það er bara skemmtilegt að spjalla við það.
Á föstudaginn bauð Dave (einn af þeim sem ég bý með) nokkrum vinum heim og úr því varð hinn skemmtilegasti hópur... semsagt gaur frá Kagistan, annar frá indlandi og einn þjóðverji. Það eru semsagt hreint út sagt allra þjóða kvikindi hérna.

ad

Á myndinni eru íbúðarfélagar mínir á ganginum okkar. Tovah er í bleika bolnum og býr reyndar á í næstu íbúð við en hún er kærastan hans Nick sem er gaurinn með bartana og er nánast alltaf hérna. Beth er í grárri hettupeysu til hægri og Jes er líka í aðeins dekkri grárri hettupeysu til vinstri og Dave stendur. Þau eru öll frá usa nema Dave sem er frá Kanada. Sem betur fer eru þetta allt fínir krakkar og við borðum oft saman og höfum það næs í eldhúsinu sem er ekkert nema gott mál :)

En framundan er nóg að gera.. er að klára fyrsta kúrsinn í þessari viku, tónleikar á föstudaginn, toga party á mánudaginn í næstu viku og svo er víst stefnan að halda alvöru Halloween party :) Fékk reyndar ekki svo góðar fréttir í dag.. líklegt að prófin séu eftir jól. Þarf semsagt að taka 3 próf og ég rétt vona að þeir hafi þau fyrir jól... en það lýtur ekki vel út :( Já eitt í viðbót... gæti talist sem stórfréttir jafnvel.. ég er svo mikið að spá í að taka PhD strax eftir MSc að það er ekki fyndið. Við sjáum hvað gerist..  ætla amk að skoða málið og athuga hvort ég get fengið styrk og svona :) En er hræðilega spennt fyrir að taka það hérna í Management :)

Until later... reyni að vera duglegri að blogga !
Inga Pinga

Eldur eldur...

17. september 2008 klukkan 13:01
Jájá nóg um að vera hérna sko...
Í gær fór ég út í skóla enn og aftur í þvílíkri rigningu að annað eins hefur varla sést. Þar fékk ég þvílíkan stafla af bókum að mér eiginlega bara hálf brá. Ég meina ég er í fjórum fögum þarf ég virkilega 6 bækur í það sem allar lýta út eins og símaskrá? Ég bara spyr... (greinilega of langt síðan ég var í skóla). Anyhow eftir að hafa burðast heim með bækurnar var ekkert smá kærkomið að taka því rólega svona til tilbreytingar og gera hreinlega ekki neitt! :) En já við Beth höfðum það voða cosy þanngað til surprize surprize eldvarnarkerfið fór í gang... again! Svo við töltum niður stigann til allra hinna sem biðu úti eftir slökkviliðinu!
Svo komu tveir bílar frá þeim... þeir ypptu bara öxlum þegar þeir sáu að þetta var sama hús og áður :) Soldið fyndið samt þar sem kominn var hópur af þokkalega hot slökkviliðsgaurum en þeir voru bara slakir og alveg duglegir að daðra við okkur...



Sem var náttúrlega bara gaman... haha...  En já í dag fór ég svo að hitta ráðgjafann minn í skólanum. Hann er voða næs og var aðallega bara að spjalla um fótbolta við mig haha.. en hann skýrði ýmislegt út svo núna þarf ég eiginlega að ákveða hvaða tíma ég vil taka eftir áramót. Núna er ég að fara í eftirfarandi:
  • Management decision making (20 einingar)
  • Financial information management (10 einingar)
  • People in organisation (20 einingar)
  • Managing innovative change (10 einingar)
Svo þarf ég að velja eftir áramót hvað verkfræðikúrsa ég vil taka. Mjög líklegt er að ég þurfi að taka einhverja kúrsa í edinborg. Annað hvort í University of Edinburgh eða Heriot-Watt university. Þetta verður flóknara og flóknara ég er semsagt í tveimur deildum og eftir áramót í tveimur háskólum... :P Þetta skýrist vonandi betur. En það verður þá annaðhvort Geotechnical (svona jarðfræði tengt), structural (bygging) eða vatnafræði sem ég þarf að velja... ótrúlega eitthvað flókið og skrítið. En já svona er þetta bara.
Ég er að fara í einhverja rosa móttöku á eftir með dean of faculty og head of business school og á morgun er önnur með verkfræði deildinni. stuð stuð stuð...
en já endilega látið heyra í ykkur ;)
He-ya Inga Pinga

ELSKA Glasgow!

15. september 2008 klukkan 17:43
Jább... ég er hreinilega in luuuuuve... with Glasgow! Þið heyrðuð það hér fyrst!
Það er svooo mikið um að vera hérna og skrítnir hlutir að gerast að það er hreinlega fyndið!
Á föstudaginn fengum við einn flatemate í viðbót hann heitir Nick og er frá New Jersey. Þetta var eiginlega svona tveir fyrir einn tilboð því kærastan hans flutti í næstu íbúð við okkur og hún er eiginlega bara alltaf hérna líka sem er ok. Hún heitir því frumlega nafni Tova sem mér fannst frekar fyndið. Anyhow við vorum öll svo þreytt á föstudaginn að ég, Beth og David ákváðum bara að elda okkur mat hérna heima. Svo hittum við Nick og Tovu og það var blaðrað fram eftir kvöldi. Frekar næs. Það var bara farið frekar snemma að sofa en vaknaði reyndar um 4 leytið við einhver læti en ákvað að það væri líkega ekkert. Nema hvað daginn eftir áttum við Beth að fara í vettfangsferð. Ég til Stirling og hún á loch Catherine. Anyhow á laugardagsmorguninn bankar hún á dyrnar hjá mér og segir hefur þú séð eldhúsið? Ég bara ha nei.. hvað meinaru. Við röltum inn í eldhús og það var hreinlega rústir einar, eða svona liggur við. Það var jógúrt á glugganum, þvottaefni á gólfinu, það hafði verið tæmt úr slökkvitæki svo það var hvítt duft allsstaðar, það var búið að brenna teppið með straujárni og hella úr mjólk yfir stóla og teppi osfrv. Frekar nasty sjón svona snemma morguns. Sem betur fer vorum við frekar tímanlega í því svo við fórum og tilkynntum þetta. Mjög óþægileg tilfinning að einhver hafi komið inn til okkar og hreinlega farið um eldhúsið. Þetta er svo tilgangslaust og fáránlegt að ég verð bara reið að því að hugsa um þetta. Allaveganna við Beth þurftum náttúrlega að fara í ferðirnar svo við þurftum að láta David tækla þetta. Hann stóð sig vel strákurinn og greiddi úr þessu og Nick viðurkenndi að hafa gleymt að læsa útihurðinni, svo það fór eins vel og það gat farið.
Stirling ferðin var soldið lituð af þessu til að byrja með en...

dfa


það lagaðist eftir því sem á leið. Kynntist mjög myndarlegum hokkíspilara og laganema frá Þýskalandi og það var bara stuð hjá okkur. Við fórum semsagt til Stirling sem er mjög merkilegur staður í Skoskri sögu og sáum Wallace minnismerkið ásamt því að fara til heimabæjar útlagans Rob Roy þar sem við fylgdumst líka með "æsispennandi" keppni eldri borgara í botcia. Við enduðum á því að fara í bruggverksmiðju sem bruggar eðal whisky eða svokallað single malts whisky sem er miklu fínna en það sem venjulega er boðið upp á og þar að leiðandi líka miklu dýrara. Single malts whisky þýðir að það er ekkert blandað en flest wisky eru blönduð að hluta til. Anyhow smökkuðum whisky sem bragðast ok ef maður þefar ekki af því :P

lj


Þegar heim var komið eftir ferðina voru strákarnir búnir að þrífa (amk það mesta... held það viti nú allir hvað það þýðir þegar strákar þrífa) svo það var amk ákveðinn léttir. Teppið þarf að gufuþrífa eða eitthvað svo það er bara ógeðislykt inn í eldhúsi núna :P En já við ákváðum að fara út að borða of fara svo í party hjá queen margaret union en það er eitt af nemendafélögunum sem starfa hérna. Party-ið var ekki alveg að gera sig svo við beiluðum á því og fórum í staðinn á kirkju kránna. Sem er megakúl by the way...
Gærdagurinn fór að mestu leyti í leti og þrif og svo ákváðum við Beth að drífa okkur út. Svo við fórum niður í bæ niður á Sauchiehall street.


.
Kíktum á bar þar og enduðum á The garage sem er frekar kúl næturklúbbur. Hittum fullt af skotum þar, ekkert smá skemmtilegt.


Í dag var svo fyrsti dagurinn sem ég hitti fólkið sem ég er með í kúrsum. Prófessorinn sem talaði við okkur er æði og þetta er æðislega óformlegt og skemmtilegt. Eftir því sem hann sagði þá er nokkuð víst að það verður ekki gert mikið annað en að læra þegar skólinn byrjar í nætu viku svo maður verður að reyna að nota þessa viku vel :) Mér lýst svo vel á þetta prógram að það er ekki fyndið. Ég meina þetta er bara hreinlega sniðið fyrir mig! Frekar fyndið samt það er svo mikið af asíubúum þarna og svo er slatti af svertingjum og svona.. held við séum 3 sem erum hvít af svona 30 og eitthvað manns. And guess what... ég er eina ljóshærða manneskjan! Frekar skondið! Maður er ekki beint vanur því að skera sig úr heima. hahaha......
En þegar heim var komið í dag var einhver þreyta í okkur svo við héngum yfir tölvunni og horfðum á bíómynd... nema hvað... eldvarnarkerfið fer í gang... rosaleg læti. Allir þurftu náttúrlega að yfirgefa bygginguna svo við fórum út á inniskónum og vorum öll úr okkar íbúð frekar eins í háskólapeysunum okkar.. haha.... svo birtist slökkviliðið, tveir bílar hvorki meira né minna og rosa læti! Það var víst einhver kínversk stelpa sem býr í íbúðinni með Tovu sem var að elda hrísgrjón inn í herbergi.... smart move. Þetta var samt frekar gaman bara... I love men in uniforms!


Þarna er slökkviliðið að fara (rétt svo náði þeim á mynd)

Ekkert smá viðburðaríktur dagur.. já og Ásta var að tilkynna mér að Ingunn vinkona væri búin að missa vatnið svo það er nóg um að vera... elsku Ingunn mín bara gangi þér vel og hlakka til að sjá myndir af krílinu, sendi þér hlýja strauma!

En já anyhow nóg um mig hvað er að frétta af ykkur?
Heya Inga

Glasgow here I am!

11. september 2008 klukkan 15:31
Hæhæ kjútí fólk!
Jæja ég er komin til Glasgow og meira að segja búin að vera hérna í nokkra daga. Veit ég hefði kannski átt að láta í mér heyra fyrr... en blogcentral síðan er ekki alveg að gera sig hérna svo ég varð að gera nýja síðu og sjáum hvernig það virkar... á örugglega eftir að taka einhvern tíma að láta hana virka eins og ég vil ;)
En já ferðasagan? Ferðin gekk eins og í sögu eins og reyndar allt hingað til. Hitti skotapar í flugvélinni sem fræddi mig um hitt og þetta sem var voða nice. Þegar ég kom á hótelið með allan farangurinn (sem var um 35kg+ handfarangur um 16kg) komst ég fljótt að því að það er aðeins örlítið erfiðara að skilja skota en annað fólk þar sem stelpan í móttökunni virtist tala eitthvað annað tungumál en ensku. En það reddaðist og það var voða gott að komast í sturtu og huge rúm kúra sig niður og horfa á sjónvarpið. Soldið fyndið að fyrsta stöðin sem ég kveikti á var að sýna Braveheart. Svo fyrsta kvöldið mitt í Skotlandi horfði ég á Braveheart og er svo að fara til Stirling á laugardaginn. Skondið :) En já á mánudaginn fór ég svo og fékk herbergið mitt. Það er alveg hreint ágætt, rúmgott og fínt. Fékk mér göngutúr að skólanum og fyrstu ferðina á Starbuck. Geðveikt næs gönguleið í skólann. Fyrst í gegnum Botanic garden sem er algjört æði og svo frekar svona busy nánast verslunargötu.

Botanic gardens

Skólinn er vægast sagt æðislegur. Ekkert smá falleg bygging og aðrar byggingar en aðalbyggingin eru mjög flottar líka. Ekki skemmir fyrir að allt umhverfið hreint út sagt iðar af lífi. Soldið annað en maður á að venjast heima.

University of Glasgow

Allaveganna þá tekur ótrúlega á að þekkja engan og hafa engan að tala við. Svo restinni af deginum eyddi ég í herberginu mínu að taka upp úr töskum og ganga frá dótinu mína. Á Þriðjudaginn skrapp ég í IKEA. Víí.... huge ikea búð hérna og mér vantaði ansi mikið af dóti. Ekki síst til að reyna að dempa aðeins þennan stofnanbrag sem er alltaf á svona vistum. Amk komst fram og tilbaka frá ikea og kom heim með helling af dóti. Held hreinlega að ég hafi fengið allt sem mig vantaði nema prentara :)
Þegar heim var komið fór ég inn í sameiginlega eldhúsið og hitti þar 2 aðra krakka sem búa semsagt hálfpartinn með mér. Þau heita David og Beth. David er frá Qubec í Kanada og er að taka master í Computer science en það er líklega tölvunarfræði á íslensku. Hann er reyndar verkfræðingur og með master í því en langaði að prófa eitthvað nýtt. Beth er frá Tucson, Arizona í Bandaríkjunum og er að taka master í bókmenntum. Þau voru líka að koma hinngað svo það var ekkert smá nice að hafa einhvern til að tala við loksins :) Eftir smá spjall í eldhúsinu ákváðum við að fara út og fá okkur að borða... hummm... borða/drekka er líklega réttara.
Það sem upphaflega átti að vera smá skrepp endaði í þvílíku djammi. Fórum niður í bæ á einhvern stað þar of borðum og drukkum nokkarar flöskur af rósavíni. Eftir nokkrar flöskur og nokkur skot pol þar sem við töpuðum illa fyrir einhverjum gaur sem hét William og var í breska hernum (hann var by the way mjög lélegur en við töpuðum samt) ákváðum við að finna annan bar. Enduðum á einhverjum klúbb sem var hrikalega skemmtilegur og var dansað þar langt fram eftir. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og ég er mjög fegin að hafa amk 2 góða íbúðarfélaga. :D
En já í gær var hreint út sagt mjög mikil þreyta....við þurftum að sækja miða fyrir rútuferðir og fleira fyrir 11 og að mæta á fyrirlestur klukkan 11 um morgunin og það var soldið erfitt... en tókst samt. Hittum fullt af postgraduate stúdentum þar sem var samt bara sýnishorn miðað við hvað er mikið af undergraduate stúdentum hérna. Ég hitti m.a. einn gaur sem verður líklega með mér í tímum fyrstu önnina. Hann er í vélaverkfræði og management og heitir mjög skrítnu nafni og er frá Nígeríu. Og svo hitti ég mjög mikið af indverjum með skrítnum nöfnum líka... svo ég man ekki neitt. humm....  Þar sem þetta var mjög þreyttur dagur var maður ekki mjög mikið að blanda geði. Eftir hádegi fórum við Beth svo í rútuferð um Glasgow sem virtist afar endalaus og röltum svo að kaupa í matinn....
Dagurinn í dag er aðallega búin að fara í skólafyrirlestra um hitt og þetta og svo kíktum við niður í bæ. Reyndar mjög fyndið fórum á Kebab stað og gaurinn sem afgreiddi okkur var bara fyndinn. Spjallaði þvílíkt mikið við okkur og fannst æðislegt að ég væri frá Íslandi. Eins og reyndar öllum. Skil það ekki alveg en það virðast allir dýrka Ísland amk hérna. Það er náttúrlega bara plús en það er líka bara fyndið hvað allir eru rosalega vingjarnlegir! Maður er eiginlega ekki vanur þessu... svona miðað við heima :)
En já það er víst djamm í kvöld aftur. Einhver hálfgerð móttaka eða eitthvað. Amk vín matur og músík. Fyrir mér er það ávísun á djamm svo....  ætli það sé ekki best að finna sig eitthvað til ;)
Verðum í bandi
Hey ja
Inga